Skilmálar og skilaréttur
Um verslunina
BH Clothing selur handvalda vintage merkjavöru. Hver flík er einstök og aðeins til í einu eintaki. Hafðu samband á bhclothing@bhclothing.is ef eitthvað er óljóst — við svörum fljótt.
Pöntun og greiðsla
Þegar þú sendir pöntun færðu svar frá okkur með staðfestingu og greiðsluupplýsingum (millifærsla eða Aur). Flíkin er frátekin fyrir þig þegar greiðsla berst — þar sem aðeins er til eitt eintak af hverri flík gildir að sá sem greiðir fyrst fær flíkina. Ef flík selst á undan þinni greiðslu látum við þig strax vita og fellum pöntunina niður.
Öll verð eru í íslenskum krónum.
Sending
Við sendum um allt land með Dropp — á afhendingarstað (990 kr.) eða heim að dyrum (1.490 kr.). Pakkinn fer af stað innan 1–2 virkra daga frá greiðslu og þú færð SMS frá Dropp þegar hann er tilbúinn. Nánar á sendingarsíðunni.
14 daga skilaréttur
Þú hefur 14 daga frá afhendingu til að falla frá kaupunum, í samræmi við lög um neytendasamninga. Til að nýta skilaréttinn sendirðu okkur tölvupóst innan frestsins og skilar flíkinni í sama ástandi og þú fékkst hana — hrein og óbreytt.
- Kaupandi ber kostnað af skilasendingu.
- Við endurgreiðum kaupverðið (að meðtöldu upphaflegu sendingargjaldi) innan 14 daga frá því að flíkin berst okkur.
Ástand og gallar
Allar flíkur eru notaðar og ástandi hverrar flíkur er lýst heiðarlega á vörusíðunni. Eðlileg notkunarmerki á vintage flík, sem lýst er í vörulýsingu, teljast ekki galli. Ef flík reynist verulega frábrugðin lýsingunni skaltu hafa samband — þá lögum við málið með skilum, afslætti eða endurgreiðslu.