Persónuvernd

Stutta útgáfan: við söfnum aðeins því sem þarf til að afgreiða pöntunina þína, deilum því ekki með neinum nema burðaraðilanum og eyðum því ef þú biður um það.

Hvaða upplýsingum söfnum við?

Þegar þú pantar gefurðu upp nafn, netfang, símanúmer og heimilisfang. Þessar upplýsingar berast okkur í tölvupósti og eru eingöngu notaðar til að afgreiða pöntunina — staðfesta greiðslu, senda pakkann og hafa samband ef eitthvað kemur upp á.

Hverjir fá upplýsingarnar?

Nafn, heimilisfang og símanúmer fara til Dropp svo hægt sé að afhenda pakkann og láta þig vita með SMS. Að öðru leyti deilum við upplýsingunum þínum ekki með neinum og seljum þær aldrei.

Vafrakökur og karfan

Síðan notar ekki rakningarkökur og ekkert auglýsingaeftirlit. Karfan þín er vistuð í þínum eigin vafra (localStorage) og fer aldrei á netþjón.

Réttindi þín

Þú getur hvenær sem er beðið um að sjá, leiðrétta eða láta eyða þeim upplýsingum sem við höfum um þig — sendu póst á bhclothing@bhclothing.is. Ef þér finnst við ekki standa okkur er hægt að kvarta til Persónuverndar (personuvernd.is).

Aftur í verslun